Auðveld (ótrúlegt en satt!) og geggjað góð ísterta sem alltaf slær í gegn!
Auðveld (ótrúlegt en satt!) og geggjað góð ísterta sem alltaf slær í gegn!
BOTN
Myljið annan pakkann af oreo kexinu
Bræðið 2 msk smjör og blandið saman við
Setjið kexmulningsblönduna í botninn á smelluformi (ca 20cm) og þjappið vel niður
VANILLUÍS
Skerið vanillustöngina til helminga á langsum og skafið kornin úr
Setjið stöngina og kornin í pott ásamt 1/2 dl rjóma og hitið að suðu
Kælið í ísskáp
Takið vanillustöngina upp úr vanillurjómanum, bætið restina af rjómanum út í og þeytið
Í annari skál, þeytið eggjarauður og flórsykur þar til verður létt og loftkennt
Bætið rifnum appelsínuberki (eða koníak) út í eggjarauðublönduna ásamt þeytta vanillurjómanum og hrærið varlega saman með sleif
Hellið helmingnum af ísmassanum í formið með oreo kex botninum og frystið í 1 klst
Myljið hinn oreo kex pakkann
Takið ísinn úr frystinum, dreyfið oreo kexmulningnum ofan á, flott að hafa aðeins þykkara lag út til hliðanna
Hellið restinni af ísmassanum yfir
Takið nokkra sykurpúða, klippið þá í helmina og dreyfið yfir ísinn
Frysta í 6 klst (eða yfir nótt)
SÚKKULAÐISÓSA
Bræðið suðusúkkulaðið á miðlungshita í potti
Bætið örlitlum rjóma út í til að þynna (má líka nota sýrðan rjóma)
Takið ístertuna úr frysti ca 10 mín fyrir framreiðslu
Setjið restina af sykurpúðunum ofan á
ef þú átt gasbrennara er mjög flott að brenna aðeins kantana á nokkrum sykurpúðum
Dreyfið súkkulaðisósunni yfir
NJÓTIÐ!!